Blogs

Marks og Kattens garn í Kompunni á Sauðárkróki

Komið á lager í fallegum sprengdum litum í 100 gr. hnotum. Prjónastærð 3-6 er fín fyrir þetta garn. Mjög mjúkt og þægilegt viðkomu.

Nýtt í Kompunni á Sauðárkróki

Var að taka í sölu prjónagarn frá garn.is

Þær tegundir sem eru komnar á lager er 100% superwash ull í 20 litum. Garn fyrir prjónastærð 3-4. Og Mohair garn í fallegum litum. Garnið er selt á sama verði og á garn.is

 

Kambgarn

Var að fá sendingu af Kambgarni og Lopa. Nýjir fallegir litir á lager. Verið velkomin.

Útsala í Kompunni

Útsala er hafin í Kompunni á hannyrðavörum og föndurvörum. Útsalan verður út janúar. Verið velkomin.

Gleðilegt nýtt ár 2010

Gleðilegt nýtt ár 2010 kæru lesendur og viðskiptavinir Kompunnar á Sauðárkróki. Og takk fyrir viðskiptin á undanförnum árum. Kær kveðja, Herdís.

Þæfingarnámskeið 12. nóvember

Þæfingarnámskeið verður haldið á vegum Kompunnar á Sauðárkróki 12. nóvember nk. ef næg þátttaka næst (lámark 5 manns) frá kl. 18.30-21.00 uþb. Kennari á námskeiðinu verður Sigrún Indriðadóttir listakona úr Lýdó;-) Kennt verður að þæfa utanum borðlampa, sjá sýnishorn í versluninni Kompunni að Aðalgötu 4 á Sauðárkróki. Námskeiðið kostar 9000 kr. allt innifalið. Skráning í síma 453 5499. Verið velkomin.

Ný bútasaumsefni

Nýkomin sending af fallegum bútasaumsefnum í jóladúkana og jólaföndrið. Verið hjartanlega velkomin.

Bucilla nýjar vörur ´09

Nýkomin sending af Bucilla vörum, fallegir sokkar, smáskraut,snjókarlar, veggstykki og fleira fallegt. Kíktu í Kompuna, það borgar sig. Verið velkomin.

Dalegarn á 50% afslætti.

Nú gefst viðskiptavinum Kompunnar á Sauðárkróki tækifæri á að nýta sér kostakaup á Dalegarni. Veittur er 50% afsláttur af Falke, Ara og Hubro í nokkrum litum.

Falke kostar nú á afslættinum 315 kr. 50 gr. prjónar nr. 3 1/5

Ara garnið er selt á 220 kr. 50 gr. prjónar nr. 7-9

Hubro selst á 150 kr. 50 gr. prjónar nr. 7-9

Afsláttur er veittur meðan byrgðir endast! Verið velkomin.

Námskeið í Kompunni haust ´09

Ef þig langar á námskeið td. í að mála á keramik, búa til skartgripi, skreyta kerti, læra perlusauminn eða annað föndur þá ekki hika við að hafa samband við mig í Kompuna á Sauðárkróki og ég skal aðstoða þig eftir bestu getu! Það er opin vinnustofa í Kompunni fyrir námskeið á opnunartíma verslunarinnar. Svo nú getur þú bara valið þér tíma sem þér hentar, hafðu samband og skráðu þig á námskeið! það þarf ekki að bíða eftir að lámarksfjölda sé náð í nein námskeið í vinnustofunni.           Þú kemur bara þegar þér hentar:-) sími 453 5499.

Syndicate content