herdis's blog

PERLUSAUMSNÁMSKEIÐ

Er ekki um að gera nýta tækifærið núna úr því það gefst;) Námskeið í perlusaumi verður haldið í marsmánuði á Sauðárkróki ef næg þátttaka næst (5 manns). Nemendur læra að lesa perlusaumsuppskriftir og sauma eftir þeim. Þetta verður námskeið sem verður 2 skipti þe. fyrri daginn saumum við kennslustykki og göngum frá því. En seinni daginn verður aðstoðað við önnur verkefni sem nemendur velja sér sjálfir, getur verið dúkur, jólakúlur eða annað. Innifalið í námskeiðinu er efni í sjálft kennslustykkið og uþb. 10 uppskriftir, nál og tvinni. Gott er að hafa með sér skæri. Gert er ráð fyrir 2x4 klst. í námskeiðið. Áhugasamir hafi samband við Herdísi í síma 699 6102. 

FERMINGARKERTIN

Fyrirhugað er námskeið í kertaskreytingum í marsmánuði á Sauðárkróki. Dagsetning ekki ákveðin ennþá. Kennt verður að búa til blóm og skraut úr vaxi ásamt því að leiðbeina hvernig við setjum texta á kerti með vaxi. Upplagt fyrir þá sem áhuga hafa að skreyta kerti fyrir fermingarnar í vor. Hafið samband við Herdísi í síma 699 6102 ef þið viljið nýta ykkur tækifærið.

LOKADAGAR KOMPUNNAR

Síðustu opnunardagar Kompunnar eru framundan! á morgun föstudag verður opið frá kl. 13-18 og á laugardaginn 21. janúar verður opið frá kl. 11-16.

50% afsláttur.

Síðustu dagarnir!!!!!!!!

Rýmingarsalan heldur áfram í Kompunni í næstu viku. Enn er hægt að gera fantagóð kaup á ýmsum varningi sem gæti komið sér vel;) Allar vörur á 40% afslætti. Opið verður eins og venjulega frá kl. 13-18

RÝMINGARSALA

Kl. 13 í dag föstudaginn 13. janúar 2012 hefst rýmingarsala í Kompunni. Allar vörur á 40% afslætti. Opið til kl. 18 og á morgun laugardag frá kl. 11-16. Verið velkomin í Kompuna.

Enn meiri afsláttur á útsölunni

Já nú er hægt að gera betri kaup. Kíktu við eða hringdu í síma 453 5499. Verið velkomin.

ÚTSALA ÚTSALA

Nú er ÚTSALAN hafin í Kompunni. Allt á að seljast. Allar vörur á lámark 20% afslætti, fyrir utan lopan sem er á 15%.  Kíktu við og nýttu þér þetta frábæra tækifæri. Verið ávallt velkomin.

GLEÐILEG JÓL

Ég óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með kæru þakklæti fyrir viðskiptin og innlitin á síðuna á undanförnum árum. Um leið við ég minna ykkur á útsöluna sem hefst hér í Kompunni 27. desember kl. 13. Allar vörur á afslætti. Verið ávallt velkomin í Kompuna.

Fallegar perlur og skart

Var að koma á lager, týgirsauga og fleira fallegt til að nota í armbönd og annað sem okkur langar. Einfalt og fljótlegt að útbúa fallega jólagjöf. Verið velkomin.

Prjónagarn 30% afstáttur

Ýmsar tegundir ss. Tyra, Frapan, Hubro og fleiri, 30 % afsláttur. Verið velkomin.

Syndicate content