Spennandi tímarí Kompunni
Já nú færist fjör í leikinn;-) Síðustu daga hef ég verið að rýma fyrir nýjum handverksvörum sem ég er að taka í umboðssölu frá fólki víða að. Töluvert er komið í hús en ennþá á eftir að bætast í flóruna og óhætt er að segja að margt fallegt verður í boði fyrir viðskiptavini Kompunnar sumarið 2010. Ég vil hvetja þá sem vilja vera með að hafa samband við mig hið fyrsta, síminn minn er 453 5499 í Kompunni. Svo er líka hægt að senda mér línu á kompan@kompan.is
